Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

OUT!

11. september 2007 klukkan 22:49
Jæja, er að spá í að prófa að færa mig yfir á blog.is

gralli-gormur.blog.is

tékk it!

Smá fréttir;)

03. september 2007 klukkan 14:45
Ykkur til ánægju og einnig mér, þá hef ég smá fréttir;) Ég er hætt að reykjaSvalur Hætti að reykja í gönguferðinni, vildi ekkert vera að tilkynna það neitt strax, bara til að athuga hvernig þetta ætti eftir að gangaUllandi Enda er það búið að ganga mjög vel, enda á ég góðan kærasta sem að hjálpar mér!
En allavega, fór að síga í gær með Hansa og Ólöfu, fórum soldið seint að síga en það var bara skemmtilegra!
Svo er það annað, ég þarf að fara að skrifa bréf til pabba án allra Íslenskra stafa, af því að danskar tölvur eru skrítnar! Tannig ad eg tarf ad skrifa svona til pabba mins:D þetta verður skrítið!

En ég ætla bara að svara honum á eftir;)

en sjáuimst;)

Komin heim

26. ágúst 2007 klukkan 23:00
Hehe... ég verð nú eillega bara segja það að ég er HÖRKUTÓL!!
Kom heim úr gönguferðinni á Föstudaginn, átti að koma heim í gær, en þar sem að ég fékk ofnæmi/útbrot, eitthvað á hendurnar. Sem olli því að hendurnar á mér bólgnuðu!! ANDSK.. En samt þá var þetta djöfulli erfið ganga. Laugavegurinn er ekki fyrir óvana göngumenn. Ég hélt á tímabili að ég myndi deyja! Fyrstu 2 dagarnir voru fáránlegir, upp og niður, upp og niður, upp og niður..... osfrv! Ekkert nema það! Svo þegar við löbbuðum frá Álftavatni löbbuðum við bara á sandi. Svo var sá meira upp og niður og mikil RIGNING!! Þegar við komum í Emstrur... Sjitt, ég hef aldrei lent í annarri eins rigningu!! VÁ!! Það var ALLT blautt, hvort sem það var bakpokinn eða fötin eða skálin sem að ég borðaði úr! Vá heill sólarhringur af rigningu!! Svo loksins þegar við vorum á leiðinni í Þórsmörk þá fór dótið að þorna, SMÁ! En við komum okkur upp snúru og þurrkuðum fötin einn dagin, daginn sem að við vorum í fríi! Ahh...

En svo þurfti ég að fara heim á föstudag.. ég var ekkert smá fúl að fara ekki yfir fimmvörðuhálsin. En þar sem að hendurnar á mér voru orðnar frekar bólgnar og eitthva... ÞArf að láta athuga það!

En í rauninni þá nenni ég ekki að blogga, þar sem að ég er þreytt!

Magga

Fylla út!

14. ágúst 2007 klukkan 09:40

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku saman?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Mér leiðist!!

12. ágúst 2007 klukkan 19:05
Já, mér leiðist heví mikið get ekki sagt annað... Fór aðeins á djammið í RVK í gær... Ég get nú sagt að mér fannst ekki gaman, kannski var það vegna þess að það var of mikið af fólki fyrir minn smekk, miðað við það sem að ég hef vanist! En já horfði á HM í morgun og var ánægð með stöðu Íslendingana en mér fannst frekar leiðinlegt að sjá þegar að það datt undan Hvini frá Holtsmúla!:S Það minnti mig svolítið á þegar Óli bróðir sagði mér frá þegar Freyja festi sig í girðingu og það rifnaði úr hófnum á henni og eitthvað.. *hrollur*. Það er vont þegar eitthvað sona kemur fyrir en þrátt fyrir það góð frammistaða hjá Íslendingum! Bara til Hamingju!

Svo læt ég mér bara leiðast þangað til að fólk kemur heim! Svo er mamma að fara til Svíalands á miðvikudag... Og viti menn, það er búið að nefna lilluna, Rebekka Gabríela Kristrún Jóhannsdóttir Kolstrum. Ótrúlega flott nöfn! Alveg ótrúlega sæt!

En ég er farin að gera eitthvað þarfara en að blogga!

Magga

Jæja

10. ágúst 2007 klukkan 21:05
Jæja, ég bíð bara... Mamma og Óli að koma heim frá Danalandi á eftir, eru sennilega í flugvélinni núna lenda eftir ca. 1 1/2 kl. Hlakka svo mikið til að sjá þau! Ekkert smá! Hlakkar líka ekkert lítið til þar til að Hansi minn kemur heim! Hann kemur heim eftir 4 daga... ví! Koss

En annars þá er planið að vera í helgarfríi, fara í Gaypride gönguna á morgun, fara svo heim og fara í sturtu og láta svo Adda litla frænda skutla mér suður, því ég ætla að prófa djammið fyrir sunnan... Þar sem að maður er loksins komin með aldur til að fara inn á einhverja staði, hvernig væri þá að skella sér?

En annars er vikan búin að vera fljót að líða, var náttlega í fríi á Mánudagin, bara heví næs það! Svo flaug vikan bara og allt í einu komin föstudagur! Er að bíða akkurat núna eftir símtali. Þarf að fara að sækja fólk úr hestaferð... vonandi að það verði bara fljótlega, ætla að reyna að fara útá flugvöll að sækja þau!

En svo líður líka að því að maður fari af Hvanneyrinni... Vonandi ennþá meira inn í sveitinaHlæjandi

En annars þá ætla ég bara að fara að dingla mér eitthvað!

Magga...

Vááá...

07. ágúst 2007 klukkan 22:23
Vá, ég vissi ekki að það væri hægt að sakna einhvers sona mikiðGráta En eins og flestir vita þá er pabbi farin út til Danmerkur og ég sakna hans.... Svo er Hansi minn úti í Hollandi á Heimsmeistaramótinu í hestum og ég hlakka svo mikið til þegar hann kemur aftur heimHlæjandi híhí, bara næstum því 6 dagar... þetta verður fljótt að líða! Það styttist líka í það að ég fari í frí, frí og ekki frí kannski, er að fara í gönguferðina víðfrægu... við ætlum að fara Laugarvegin og fimmvörðuháls, hlakka til. Ég og Hans fórum á ammælisdaginn minn og hittum Marie Éve og Troels og þau eru bara heví fín! Ógisslega gaman að hitta þau loksins.. Vorum bara búin að tala við þau á netinu.. En hlakka svo mikið til. Marie ákvað að flétta á Troels hárið og skeggið!

En annars var helgin bara ágæt, ekkert að gera... var í fríi á mánudag og hef held ég aædrei verið eins fegin að vera í fríi.. líka búin að vera að vinna síðan 23 júlí... orðin pínulítið þreytt en ég höndla þetta alveg:D

En ég er farin að horfa á samantekt af HM!!

Magga

híhí!

30. júlí 2007 klukkan 21:59

Jæja, þá fer að líða að því að pabbi gamli kveðji landið góða, ég verði tvítug og margt annað skemmtilegt;)

En allavega þá er Speglunin búin og allt í fína lagi, sagði læknirinn...  Ég hef náttlega ekki hugmynd þar sem að mér var gefið róandi og síðasta sem að ég man var að ég fékk eitthvað munnstykki upp í mig og læknirinn sagði að ég mætti ekki berjast á móti, svo vaknaði ég og var hálf vönkuð... fannst eins og ég væri drukkin..

En svo er mamma, pabbi og Óli að fara til Danmerkur á miðvikudag, hlakka ekkert sérlega til, pabbi að fara:'( æjj, þetta verður fljótt að líða! En svo er bara tvítugsammælið alveg að skella á, á ammæli á laugardagin... jíha! get loksins farið í ríkið sjálf!! Hihí!

En ég er að hugsa um að fara í sturtu eða bara að fara að sofa!

Magga

Hæhæ

22. júlí 2007 klukkan 16:26

Það er komin sænsk prinsessa í fjölskylduna... Til Hamingju Gyða mín með lilluna! Ohh, hlakka til að sjá myndir af henni!
En annars er helgin búin að vera frekar afslappandi, eiginlega búin að vera upp í Eskiholti alla helgina, heví næs, skipti um helgi þannig að ég er eiginlega bara vinna næstu 2 vikurnar streight! En það verður nú í lagi, ég fæ þó frí á ammælisdagin minn! Geggjað! Ég er að verða tvítug! Jíííí! Hlakka pínulítið til, en það er annað sem að maður er að hugsa um heldur en það! En já vorum bara í gær að drekka rauðvín og hvítvín, Rasmus og Hans elduðu pasta í gær, geggjað gott maður! Svo var veðrið svo gott í gær og í nótt að það hálfa væri nóg, sátum bara úti.
Fór reyndar á föstudagin að drekka með strákunum smá bjór og ákváðum ég og Hans að fara í pottin kl. 4 um nóttina!

En ég er farin að gera eitthvað...

Magga!

Helgin;)

16. júlí 2007 klukkan 10:42
Jæja, þá er helgin búin og ég er ekki sátt að hún hafi verið svona fljót að líða! En það er bara svona... En allavegana, fegin að vera búin að vinna á föstudagin. Ég bauð Hans og Láru í mat á föstudag, grillaði hammara og svo þegar að búið var að borða var brunað í bæin og farið á Harry Potterog fönixreglan, geggjað góð! Glottandi Langar til að fara aftur á hana! Komum ekki heim fyrr en kl.3 og fór ekki strax að sofa! Svo var ég vakin kl. 7:30 og það var keyrt norður á Akureyri í fermingu hjá henni Rakel Ýr:P Var ekki alveg að meika það en ég svaf á leiðinni þangað, var næstum því sofnuð í kirkjunni, var líka alveg að sofna í veislunni en svaf svo alla leiðina heim, fyrir utan stoppið í Varmahlíð!

Svo í gær þá var farið í sund og upp að Barnafossum með Láru, svo þegar við komum heim þá fórum við upp í Eskiholt, sóttum Hans og þá beið okkar grill matur:D Namm!

En ég er farin að vinna

Magga

Innskráningar kubbur

Nokkur vel valin orð..!

I think the hardest part of holding on is letting it go!

Saga er rituð í jörðinna.... segðu mér frá henni...